Minnum á handboltaskóla ÍR sem byrjar á þriðjudaginn!
Tveggja vikna handboltanámskeið fyrir krakka fædd 2004-1997. Æfingar standa yfir í tvær klukkustundir dag hvern og fara fram í íþróttahúsinu við Austurberg.
Skólastjóri er Sigurjón Björnsson(Sjonni)! Sjonni er hokinn af reynsu, en hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur þjálfað handbolta í 6 ár, allt frá 6. Flokki upp í 3. Flokk. Sjonni hefur spilað í meistaraflokki síðan 2006 og varð íslandmeistari með HK 2011 og bikar- og meistari meistarana með ÍR 2013. Sjonni er uppalinn ÍR-ingur og hefur alla sinn ferill leikið með ÍR utan tvö ár sem hann lék með HK.
Takmarkaður fjöldi kemst að í hvort námskeið og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Námskeiðsvikur:
10.-24. júní
5.-18. ágúst
Æfingatímar og aldursflokkar:
10-12 ára(02-04) kl. 09:00-11:00
13-14 ára(01-00) kl. 11:30-13:30
15-16 ára(99-97) kl. 13:30-15:30
Verð: 14.500 kr.
Skráning á www.ir.is
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki ÍR í síma 587-7080
ÍR Handbolti - 7. og 8. fl. karla
Skráðu netfangið þitt hér hægra megin á síðunni! Þannig færðu tilkynningar hér á bloggsíðunni sendar í netpósti.
sunnudagur, 8. júní 2014
Handboltaskóli ÍR
miðvikudagur, 7. maí 2014
þriðjudagur, 11. mars 2014
AÐALFUNDUR HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍR
Aðalfundur handknattleiksdeildar ÍR verður haldinn miðvikudaginn 19. mars n.k.
Fundartími: miðvikudaginn 19. mars 2013 kl. 19:30
Staður: ÍR heimilið í mjódd, 2. hæð
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn og tveir stjórnarmenn til vara.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál.
Við hvetjum allt áhugafólk um ÍR-handbolta að mæta og kynnast starfinu betur. Framboð hafa borist í allar stöður stjórnar en við hvetjum fólk til að íhuga að koma og taka þátt.
Kveðja Stjórnin
fimmtudagur, 27. febrúar 2014
Bikarhelgin - Pistill úr klefanum frá Bjarka Sig.
Bjarki Sig.
Bikarúrsliti - 4.fl. ka E. ÍR - ÍBV |sun. 2. mar. kl. 14:30 | Coca Cola bikar Laugardalshöll
Leikur þeirra við ÍBV hefst kl. 14:30 í Laugardalshöll en þar verður umgjörðin glæsileg og engu til sparað.
Það er alltaf draumur hvers leikmanns að komast í höllina og leika bikarúrslitaleik og þessir leikir eru þeir leikir sem allir yngri leikmenn vilja prufa að leika áður en þeir fara á stórasviðið með meistaraflokkunum
Ókeypis er á alla leiki á sunnudeginum og hvetjum við því alla ÍR-inga til að mæta í Höllina og hvetja strákana okkar áfram og styðja þannig við bakið þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í úrslitaleik Coka Cola bikarsins !
Flottir fulltrúar ÍR Handbolta |
Ókeypis er á alla leiki á sunnudeginum og hvetjum við því alla ÍR-inga til að mætaí Höllina og styðja strákana |
fimmtudagur, 24. október 2013
Pistill úr klefanum hjá Mfl. ÍR Handbolta
Þegar leikmenn gengu til búningsherbergja eftir leik á móti Haukum í sl. viku er óhætt að segja að það hafi verið þrungið andrúsmloft í klefanum að Ásvöllum.
Við sköfum ekkert af því að við vorum virkilega vonsviknir yfir því að tapa niður unnum leik.
Við eigum að vita að það er ekki nóg að vera yfir nær allan tímann og ætla sér síðan að spila síðan síðustu mínúturnar til þess eins að halda fengnum hlut.
Það má ekki hika, heldur verður að spila á fullu gasi og klára leikinn eins og hann hófst, því sportið er grimmt og andstæðingarnir eru fljótir að refsa þegar mistök verða. Ef við gerum þennan leik upp í einni setningu yrði hún einfaldlega - "Hrikaleg vonbrigði"
En nú styttist í næsta leik sem er á móti FH á heimavelli í kvöld kl. 20:00
Leikmenn koma vel undan helginni og eru staðráðnir í að bæta fyrir tapið á móti Haukum , enda á EKKERT lið að geta komið í Austurberg og talið sig geta tekið stigin sem í boði eru þar því þetta er okkar heimavöllur.
Dagsskipunin liðsins er einföld og á þá leið að við ætlum okkur SIGUR og komast þannig aftur á toppinn í deildinni.
Til þess að það gangi eftir þá þurfum við einnig ykkar hjálp í stúkunni kæru ÍR-stuðningsmenn.
Þið hafið oft hjálpað okkur yfir erfiða hjalla og vonumst við leikmenn til þess að þið fjölmennið í kvöld til að sjá um stemninguna í stúkunni með trommuslætti og látum og verðið þannig okkar 8 maður inni á vellinum eins og ávalt.
Þið eruð styrkurinn, umgjörðin og ástæðan fyrir því að við fáum komment eins og þessi frá öðrum liðum í sjónvarps og blaðaviðtölum fyrir og eftir leiki.
"Síðan er alltaf gaman að leika í íþróttahúsinu í Austurbergi þar sem ævinlega eru margir áhorfendur og stemningin virkilega góð«
Þarf að segja meira ?
Sjáumst spræk og eigum góðan dag í Berginu á eftir.
Kveðja
Leikmenn Mfl. ÍR Handbolta